Lögmaður
Ólafur Karl Eyjólfsson
Ó.K. Lögmenn slf. var stofnað árið 2012 af Ólafi Karli Eyjólfssyni. Ólafur Karl er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti.
Ólafur Karl hefur starfað við lögfræði og lögfræðitengd verkefni frá árinu 2005. Hann hóf störf hjá ríkisskattstjóra árið 2005 við verkefni sem tengdust einstaklingum og fyrirtækjum.
Árið 2007 fluttist hann til PricewaterhouseCoopers þar sem hann starfaði við skattarétt og síðar verkefni tengd fyrirtækjum og ráðgjöf.
Árið 2009 hóf hann störf hjá Íslenska gámafélaginu ehf. við innheimtu og tengd verkefni. Þau verkefni þróuðust síðar yfir í önnur rekstrartengd lögfræðiverkefni, þar á meðal samninga vegna verktakavinnu, leigusamninga, rekstrarleyfi og innleiðingu tengda ISO 14001 og ISO 9001.
Stofan hefur reynslu af því að vakta og uppfæra lög og reglur sem varða rekstur í tengslum við vottun samkvæmt þessum ISO-stöðlum. Þjónustan byggir á faglegum, persónulegum og kostnaðarmeðvituðum vinnubrögðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Fagleg, persónuleg og kostnaðarmeðvituð þjónusta.